Bjartasta vonin – Íslensku tónlistarverðlaunin

Hlustendur og starfsmenn Rásar 1 og Rásar 2 velja Björtustu vonina á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Gjaldgengir eru allir íslenskir „nýliðar“ eða „nýliðar“ sem búa og starfa á Íslandi og vöktu athygli á nýliðnu tónlistarári, óháð útgáfu.Óheimilt er að tilnefna nokkurn í þennan flokk sem áður hefur hlotið tilnefningu til ÍTV, gefið út hljómplötu sem aðalflytjandi eða vakið verulega athygli á einhverju tímabili sem er undangengið tímabili ÍTV hverju sinni. Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent þann 29. febrúar n.k. í Hörpu.

Veljið eitt nafn í flokknum Bjartasta vonin – popp, rokk og blús og/eða einn flytjanda í flokknum Bjartasta vonin – sígild- og samtímatónlist og djass. Heppnir hlustendur geta unnið sér inn miða á hátíðina í ár.



Tilnefndir flytjendur:

1860 sendi frá sér sína fyrstu plötu á árinu 2011. Nokkur lög af plötunni hljómuðu reglulega í útvarpstækjum landsmanna í fyrra, þar á meðal lagið Snæfellsnes, sem er óhætt að segja að hafi verið einn af sumarsmellum ársins. Liðsmenn sveitarinnar hafa komið við sögu í mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina og komið nálægt ýmsum tónlistarstefnum, frá djassi yfir í rokk, bæði á íslenskri og erlendri grundu.Lag: Snæfellsnes

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.


Of Monsters and Men bar sigur úr býtum í Músíktilraunum árið 2010 og í kjölfarið var sveitin dugleg að spila á tónleikum víðs vegar um landið og hróður hennar barst út fyrir landsteinana. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu í fyrra og lagið Little Talks varð eitt af allra vinsælustu lögum ársins. Of Monsters and Men hefur nú samið við Universal Music um útgáfu á tónlist sinni erlendis.
Lag: Little Talks

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.


Jón Jónsson sló í gegn með lögunum Lately og Kiss in the Morning árið 2010. Fyrsta plata Jóns, Wait For Fate, kom svo út árið 2011 og hann tróð víða upp ásamt hljómsveit sinni, sem heitir einmitt í höfuðið á tónlistarmanninum, lagahöfundinum og textasmiðnum Jóni Jónssyni.
Lag: Wanna Get In

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.


Valdimar Guðmundsson vakti athygli með hljómsveit sinni, Valdimar, árið 2010 þegar fyrsta plata sveitarinnar kom út. Árið 2011 var Valdimar afar áberandi á ýmsum vettvangi. Hann hélt áfram að syngja með hljómsveitinni sinni, stofnaði dúettinn Eldar með Björgvini Ívari Baldurssyni og söng auk þess með Memfismafíunni, svo að nokkur dæmi séu tekin.
Lag: Okkar eigin Osló

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.


The Vintage Caravan skipa þrír ungir piltar af Álftanesi, Óskar Logi Ágústsson gítarleikari og söngvari, Páll Sólmundur H. Eydal bassaleikari og Guðjón Reynisson trommuleikari. Árið 2011 var viðburðaríkt í sögu hljómsveitarinnar sem sendi frá sér sína fyrstu plötu á árinu og lék mikið á tónleikum um land allt. Hljómsveitin vakti mikla athygli fyrir kröftugan flutning og líflega sviðsframkomu.
Lag: Let’s Get It On

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.


Tilnefndir flytjendur:

Benedikt Kristjánsson, tenórsöngvari, var aðeins 23 ára þegar hann bar sigur úr býtum í alþjóðlegu Bach-söngvarakeppninni í Greifswald í fyrrasumar, og hreppti auk þess áheyrendaverðlaun. Hann hafði áður vakið mikla athygli hér heima þegar hann þreytti frumraun sína í hlutverki guðspjallamannsins og söng allar tenór-aríurnar í Jóhannesarpassíu Bachs með Mótettukór Hallgrímskirkju og Alþjóðlegu barokksveitinni í Haag undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Lag: Brot úr Jóhannesarpassíu eftir J.S. Bach

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.


Daníel Friðrik Böðvarsson er 22 ára gítarleikari og tónskáld sem hefur vakið athygli fyrir framsækna tónsköpun m.a. með jazzsveitinni Reginfirru og hljómsveitinni Moses Hightower. Daníel Friðrik er kornungur og hugmyndaríkur tónlistarmaður sem fer ótroðnar slóðir í hljóðfæraleik sínum og túlkun eigin verka og annarra. Hann er nú við nám í Berlín.
Lag: OMG

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.


Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands, skipuð úrvals tónlistarnemum, hélt þriðju tónleika sína í nóvember sl. í Eldborgarsal Hörpu og flutti þar hina stórbrotnu sinfóníu nr. 5 eftir Mahler með miklum glæsibrag undir stjórn Baldurs Brönnimann. Ljóst er að hljómsveitin er skipuð einvalaliði ungra tónlistarmanna.
Lag: Brot úr Mahler 5

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.